top of page

GRUNNUR EFNAFRÆÐINNAR MÓLIÐ

Öll efnasambönd hafa sinn massa. Massi efnasambanda er samanlagður massi allra atóma sem mynda þau. Massi eins atóms og þar með massi efnasambanda er þó alveg gríðarlega lítill. Það getur verið erfitt að reikna með svona litlar stærðir og til þess að auðvelda ýmsa efnafræðiútreikninga bjuggu menn til hugtak sem kallað er mól. Mól er í raun tala, þ.e.a.s. tiltekinn fjöldi atóma. Þessi tala er kennd við Avogadros og er þekkt sem tala Avogadros. Mól er innan SI-einingarkerfisins og er táknuð með n. Þessi ákveðna tala varð fyrir valinu til þess að eitt mól af atómum eða efnasamböndum sé ávallt mælanlegt í grömmum. Mólmassi er þá massi eins móls af efni. Mólmassi járns er því 55,85 gr / mól. Þar sem við erum yfirleitt að vinna með efni í náttúrulegum samsætuhlutföllum í efnafræði má ganga út frá því að frumefni og efnasambönd séu í náttúrulegum samsætuhlutföllum sínum nema annað sé tekið fram.

Þegar finna á mólmassa frumefna í náttúrulegum samsætufrumefnum þarf að taka til greina náttúrulegt hlutfall og massa allra samsæta frumefnis. Þetta er gert á sama máta og náttúrulegur atóm massi er fundinn. Óþarfi er þó að gera þetta fyrir hvert frumefni þar sem mólmassa allra frumefna í náttúrulegum samsætuhlutföllum má finna í lotukerfinu. Í lotukerfinu er mólmassi frumefnis, yfirleitt tala með kommu og aukastöfum, oftast staðsettur fyrir neðan frumefnatáknið. Sem dæmi er mólmassi kolefnis C = 12,01 gr/mól en mólmassi C-12 samsætunnar er 12,00 gr/mól. Þetta er tilkomið vegna þess að í náttúrunni er hreint kol samsett úr C-12, C-13 og C-14 samsætum kolefnis. Það eru algeng mistök að rugla saman sætistölu og mólmassa og því er mikilvægt að passa sig á því.

Það er mjög auðvelt að reikna út mólfjölda þegar massi er gefin og mólmassi þekktur. Mól hefur eininguna g/mól og því fæst mólfjöldi með því að deila mólfjölda upp í efnismagn í grömmum. Þetta getum við séð á eftirfarandi jöfnu:

n = m / Mr

Það er gott að kunna góð skil á þessari jöfnu þar sem hún á kemur fyrir síendurtekið í efnafræðiáföngum skólans.

4CDD1809-D0B7-461F-90B9-443091E83515_edi
Mólið: About Us

Á myndinni hér fyrir ofan er efri jafnann notuð til þess að reikna út fjölda móla.
Neðri jafnan er svo notuð til þess að finna út mólstyrk. 
Hægt er að umrita báðar jöfnunar eftir því sem á við.

Mólið: Text
Mólið: Pro Gallery

©2021 Ásdís Hvönn Jónsdóttir og Elva Dögg Jónsdóttir - Menntaskólinn á Egilsstöðum

bottom of page